Leiðbeiningar

Hvernig í ósköpunum bý ég til undirlén?

Að búa til undirlén er alveg sérstaklega einfalt.  Þú þarft einungis að tengja þig, með eftirlætis FTP forritinu þínu, vefþjóni 1984.  Segjum svo að þú sért með lénið blabla.is í hýsingu og þú viljir búa til undirlénið test.blabla.is, þá einfaldlega býrðu til möppu undir Sites sem heitir test.blabla.is og allt sem þú setur inn á hana verður þá aðgengilegt frá http://test.blabla.is .

 

Æ, þetta virkar ekki neitt og ég er mjög vonsvikinn innan í mér!

Það eru tvær mögulegar ástæður fyrir því að þetta virkar ekki:

#1 - Lénið er ekki með uppsett annaðhvort test.blabla.is eða wildcard færslu í DNS sem vísar á sama vefþjón og grunnlénið.

#2 - Hýsingin er eldri en eins árs og var með undirlén sett upp handvirkt fyrir.

Ef annaðhvort á við, hafið samband við okkur og við kippum þessu í liðinn.